

Aðgerðin felur í sér að greina tækifæri til bættrar landnýtingar í þágu loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni á jörðum í eigu ríkisins og móta heildstæða framkvæmdaáætlun með skýrum markmiðum og forgangsröðun aðgerða. Ríkissjóður Íslands á tæplega 430 jarðir og með þessari aðgerð gengur ríkið á undan með góðu fordæmi um sjálfbæra landnýtingu á jörðum í eigu ríkisins.

Þátttaka einstaklinga, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í undirbúningi og framkvæmd aðgerða í landgræðslu og skógrækt er lykilatriði til að ná markmiðum í loftslagsmálum og líffræðilegrar fjölbreytni í tengslum við landnotkun. Því er mikilvægt að endurskoða og efla stuðningskerfi ríkisins þannig að það verði enn skilvirkara hvað varðar fjármögnun aðgerða á einkalöndum. Jafnframt þarf að skýra hvernig Land og skógur nálgast samfélagið með virkum hætti, m.a. með miðlun, ráðgjöf og hvatningu til þátttöku í aðgerðum.

Aðgerðin miðar að því að þróa aðferðir og setja upp langtímavöktunarverkefni til að meta magn og breytingar á kolefni í íslenskum vistkerfum út frá viðurkenndum matsbreytum. Markmiðið er að eigi síðar en árið 2030 verði unnt að áætla kolefnisforða allra vistkerfa í losunarbókhaldi Íslands, breytingar á kolefnisforða þeirra og áhrif landnýtingar og endurheimtar. Í samræmi við auknar kröfur ESB samkvæmt nýrri reglugerð um gæði gagna og aðferðafræði í LULUCF þurfa gögn fyrir alla helstu landnýtingarflokka að vera komin á aðferðaþrep 2 árið 2026, þ.e. stuðlar byggðir á íslenskum rannsóknum, og á aðferðaþrep 3 árið 2030, þ.e. stuðlar byggðir á reiknilíkönum fyrir Ísland.

Land og skógur hefur lagt fram þriggja ára umbótaáætlun um bætt gögn og upplýsingar er snúa að losun frá landi. Aðgerðin felst í eftirfylgni á framkvæmd umbótaaðgerðar, og tryggja þannig hraða innleiðingu umbóta í losunarbókhaldi Íslands.

Aðgerðin felur í sér markvissa endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins. Á hluta ríkisjarða er framræst votlendi sem ekki er í nýtingu og þar felast veruleg tækifæri til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta ástand vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni.


Aðgerðin felur í sér endurheimt birkiskóga á jörðum í eigu ríkisins í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins. Náttúrulegir birkiskógar þekja um 1,5% af landsvæði Íslands en veruleg tækifæri eru til að auka útbreiðslu þeirra og þar með kolefnisbindingu. Til þess þarf markvissar endurheimtaraðgerðir, m.a. með friðun svæða og áætlun um aðgerðir á borð við gróðursetningu og eflingu fræseta, í samræmi við aðferðafræði skógræktar á landslagsheildum (e. Forest Landscape Restoration) og með vistkerfisnálgun að leiðarljósi.

Aðgerðin felur í sér áætlanagerð um hvernig megi auka hvata og þekkingu um nýtingu og varðveislu kolefnis í viðarafurðum úr íslenskum skógum á sjálfbæran hátt.

Aðgerðin felur í sér að fyrir liggi leiðbeiningar um hvernig vernda megi kolefnisrík vistkerfi, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis með skipulagsgerð.

Aðgerðin felur í sér að kortleggja og greina stjórntæki sem vinna að aukinni verndun kolefnisríkra vistkerfa.

Greina tækifæri, áskoranir og fýsileika mögulegs tilraunaverkefnis með háhitavarmadælur tengdar við fiskimjölsverksmiðjur sem reknar eru á skerðanlegri raforku.

Þrepaskipt krafa um útskipti jarðefnaeldsneytis í varaafli raforku- og varmaframleiðslu með endurnýjanlegu eldsneyti og öðrum vistvænum lausnum

Endurskoðun stofnanaskipulags á sviði umhverfis- og orkumála samhliða greiningu og endurhönnun leyfisveitingarferla og kortlagning á mögulegum tækifærum til umbóta er lykilatriði í að hraða verkefnum og framkvæmdum í þágu orkuskipta.

Aukinn kraftur settur í jarðhitaleit og nýtingu fyrir rafkyntar veitur til að fasa út jarðefnaeldsneyti í varaafli. Greining og útfærsla verði unnin með hagaðilum.

Framkvæmd valin í reynsluverkefni út frá fyrirliggjandi orkuinnviðum og verkþáttum til að leggja grunn að prófun lágkolefnislausna í framkvæmdum Vegagerðarinnar.

Framkvæmd valin í reynsluverkefni út frá fyrirliggjandi orkuinnviðum og verkþáttum til að leggja grunn að prófun lágkolefnislausna í framkvæmdum Framkvæmdasýslu - Ríkiseigna (FSRE).

Framfylgja stefnu og aðgerðaáætlun um vistvæna mannvirkjagerð, sem unnin var á vegum Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs.

Auka þarf skráningar hjá Vinnueftirlitinu og uppfæra viðeigandi reglugerð svo gögn um orkunotkun og nýtingartíma geti nýst í orkuskiptaspá Umhverfis- og orkustofnunar.

Samvinnuverkefni með sveitarfélögum um uppsprettugreiningu á losun gróðurhúsalofttegunda eftir sveitarfélögum.

Útbúin verði stöðluð kröfulýsing varðandi kaup stjórnvalda á búnaði sem inniheldur kælimiðla, svo tryggja megi að umhverfisskilyrði séu uppfyllt.

Aðgerðin felur í sér að draga úr losun tiltekinna flúoraðra gróðurhúsalofttegunda (F-gasa) með setningu reglugerðar um hámarksmagn innfluttra vetnisflúorkolefna.

Aðgerðin felur í sér að hraða útskiptingu flúoraðra gróðurhúsalofttegunda (F-gasa) hér á landi með því að skattleggja innflutning þeirra eftir hnatthlýnunarmætti.

Auka þarf rekjanleika kælimiðla með einföldun eftirlits og viðeigandi gjaldtöku, t.a.m. hækkun úrvinnslugjalds eða innleiðingu skilagjalds, til að hvetja til viðeigandi úrgangsmeðhöndlunar.

Að stjórnvöld styðji opinberlega við hugmyndir um að kæli- og frystivélavirkjun verði gert hærra undir höfði hér á landi með sérstakri námsbraut

Garðyrkjubændur í útirækt notast við kæligeymslur til þess að auka geymsluþol framleiðslunnar áður en varan fer á markað. Í mörgum kæligeymslum eru kælikerfi með kælimiðlum sem hafa háan hnatthlýnunarmátt (F-gös) og hafa því slæm áhrif á loftslagið. Mikilvægt er að skipta út þessum efnum fyrir önnur efni sem hafa minni áhrif á loftslagið.

„Loftslagsvænn landbúnaður“ (LOL) verkefnið verður útvíkkað og nýir þátttakendur munu bætast við. Haldið verður áfram að efla fræðslu um náttúruvernd, loftslags- og umhverfismál til að aðstoða þátttökubændur við að setja sér markmið og fara í aðgerðir sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða binda kolefni og um leið skila hagkvæmari búrekstri. Hluti fræðslustarfsins verður sniðinn að styrkjum úr Loftslags- og orkustjóði.

Þróun og prófun heildstæðs kerfis sem hvetur bændur til hagkvæmari og loftslagsvænni búskaparhátta og verður tilbúið til innleiðingar árið 2027.

Loftslags- og orkusjóður mun veita styrki vegna fjárfestinga í búnaði og/eða vegna verkefna sem stuðla að loftslagsvænni nálgun í landbúnaði.

Efla tæknilausnir sem bæta nýtingu áburðar, til dæmis með nákvæmnisdreifibúnaði, með styrkjum úr loftslags- og orkusjóði til að draga úr losun frá landbúnaði.

Aðgerðin felur í sér mótun tillögu að gæðakröfum vegna nýtingar lífbrjótanlegra efna sem áburð fyrir fóður- og matvælaframleiðslu

Aðgerðin felur í sér rannsókn á iðragerjun íslensks búfjár.

Gerð verður rannsókn á þætti geymslu búfjáráburðar í losun frá landbúnaði og greining á leiðum til að draga úr losun við geymslu

Innleiðing á Alternative Fuels Infrastructure Regulation (AFIR), evrópureglugerð sem miðar að því að styðja við uppbyggingu innviða fyrir óhefðbundna orkugjafa í samgöngum. Regluverkið skal tryggja skilvirkt net hreinorkuáfyllingarstöðva sem og þjónustustig afhendingar hreinorkukosta.

Fjárhagslegur stuðningur við uppbyggingu hreinorkuáfyllingarstöðva fyrir vistvæn ökutæki um land allt, sér í lagi flóknar og umfangsmiklar fjárfestingar og tengingar við flutningskerfin. Aðgerðinni er ætlað að styrkja net hleðslustöðva hringinn í kringum landið þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.

Notendum hreinorkuökutækja tryggðar einfaldar greiðsluleiðir á almennum hleðslu- eða áfyllingarstöðvum, þ.e. með greiðslukortum eða snertilausum búnaði, án þess að þörf sé á áskrift.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða í þéttbýli og á þjóðvegakerfinu þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.

Loftslags- og orkusjóður styrkir kaup á nytjahjólum, með eða án rafmagns. Um er að ræða hjól sem eru sérstaklega hönnuð til þess að flytja farm og farþega, eru dýr í innkaupum en geta nýst með samskonar hætti og einkabílar og þannig dregið úr akstri og brennslu jarðefnaeldsneytis.

Ríkið og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vinna að uppbyggingu lmenningssamgöngukerfis í samræmi við samkomulag um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.

Ríkið styður við rekstur almenningssamgangna á hreinorku og við virka ferðamáta með fjárveitingum og bættu lagaumhverfi, en tryggja þarf viðeigandi tíðni í heildstæðara, skilvirkara og þjónustumiðaðra leiðakerfi um land allt.

Áætlun verður mótuð og tilraunaverkefni hafið um almenningssamgöngur á hreinorku milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar (KEF) m.t.t. þjónustuþarfar og aðstöðu farþega.

Greind verði staða og þróun deilihagkerfis í samgöngum, mótuð stefna og ráðist í aðgerðir til að stuðla að bættu umhverfi fyrir deilihagkerfi í samgöngum.

Mótuð verði og innleidd gagnvirk upplýsingaveita fyrir heildstætt almenningssamgöngukerfi, göngu- og hjólaleiðir.

Ríkið sé fyrirmynd í innkaupum hreinorkuökutækja og vistvænnar samgönguþjónustu með undanþágum, sbr. reglugerð nr. 1330/2023.

Styrkir fyrir kaupum hreinorkuökutækja sem kosta undir 10 m.kr. verða veittir úr Loftslags- og Orkusjóði og lækki stuðningurinn í þrepum í takt við tækni- og verðþróun á markaði.

Styrkir fyrir kaupum á hópferðabifreiðum sem ganga fyrir hreinorku verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.

Stigvaxandi krafa á söluaðila eldsneytis um lágmarkshlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa seldra til samgangna á landi.

Hagrænir latar á ökutæki knúin jarðefnaeldsneyti til að stuðla að nýskráningum hreinorkuökutækja í stað ökutækja knúnum jarðefnaeldsneyti.

Með breytingum á lögum skal tryggð lagaheimild fyrir losunarlitlum eða losunarfríum svæðum (e. Low/Zero-emission Zones) á Íslandi.

Í núgildandi reglum um bifreiðahlunnindi er gerður skýr greinarmunur á því hvort um er að ræða bifreið sem knúin er með jarðefnaeldsneyti eða bifreið sem knúin er með rafmagni, vetni eða metan. Lagt er upp með að gera skýrari greinamun í skattmatsreglum tekjuársins 2024 frá og með 1. júlí 2024 til að gera rafmagns-, vetnis- og metanbifreiðar hagstæðari.

Skoðaðar verða leiðir til að auka hlutfall nýskráninga hreinorkuökutækja hjá ökutækjaleigum.

Óheimilt verði að meginreglu að nýskrá þung ökutæki knúin jarðefnaeldsneyti árið 2035. Bannið verði innleitt í þrepum í takt við tækni- og markaðsþróun.

Uppbygging háspennutenginga í stærri höfnum fyrir skip í vöruflutningum, ferðaþjónustu og sjávarútvegi út frá forgangsröðun og framkvæmdaáætlunum til viðbótar við fyrirliggjandi lágspennutengingar í heimahöfnum.

Greindar verða hagkvæmar leiðir að því að koma upp rafmagnshleðsluinnviðum fyrir rafknúin skip í höfnum. Unnið verður að forgangsröðun hafna og aðgerðaáætlun fyrir framkvæmdir í höfnum.

Greindar verða hagkvæmar leiðir, forgangsröðun og framkvæmdaáætlun um uppbyggingu áfyllingarinnviða fyrir skip knúin endurnýjanlegum orkugjöfum (öðrum en rafmagni) í höfnum, t.a.m. grænu vetni, metanóli og ammóníaki.

Hafnir skulu fá heimild til að láta gjaldskrár taka mið af umhverfissjónarmiðum með vísan til orkunýtni og kolefnisnýtni siglinga.

Unnið verður að eflingu hafrannsókna og forgangsröðun fjármagns til hafrannsókna sem tryggir gott ástand vistkerfa í hafi og lágmarkar þannig losun vegna nytja.

Fylgjast með ávinningi nýlegra breytinga á regluverki um viðbótaraflaheimildir rafvæddra strandveiðibáta sem stuðlað geta að hraðari orkuskiptum á strandveiðum og uppfæra eftir þörfum.

Samkomulag stjórnvalda við einstaka fyrritæki í sjávarútvegi miðar að samvinnu við loftslagsaðgerðir í sjávarútvegi og að ríkið hvetji fyrirtæki í sjávarútvegi til frekari samdráttar í eldsneytisnotkun í rekstri sínum um 50% árið 2030 m.v. 2005.

Þrepaskipt krafa á söluaðila eldsneytis um lágmarkshlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa sem seldir eru til fiskiskipa og í innanlandssiglingar, sem byrjar í 6% árið 2028

Ráðist verði í aðgerðir til að auka hlut strandflutninga í innanlandsflutningum og skapa rekstrarskilyrði sem styðja við tilfærslu vöruflutninga af vegum yfir á sjó. Í því skyni verði stuðlað að bættri samkeppnisstöðu reglubundinna strandsiglinga gagnvart landflutningum. Sjóflutningar eru almennt orkuhagkvæmari en landflutningar fyrir þungar og fyrirferðarmiklar vörur og geta jafnframt dregið úr álagi á vegakerfi og aukið umferðaröryggi.

Aðgerðin felur í sér stuðning við breytingar á bátum sem þegar eru í notkun yfir í rafmagns- og tengiltvinnlausnir, með það að markmiði að flýta innleiðingu orkuskipta í smábátaflotanum. Stuðningurinn felst í fjárhagslegum hvötum til raf- og tengiltvinnvæðingar smábáta.

Framfylgja lögum um skyldu til flokkunar úrgangs til að hámarka verðmætasköpun viðkomandi strauma og lágmarka myndun blandaðs úrgangs.

Annars vegar sé urðun sérsafnaðs lífúrgangs bönnuð og hins vegar verði sérsöfnun lífúrgangs lögfest.

Lögfesta og innleiða bann við urðun á lífrænum úrgangi frá og með árinu 2028.

Samvinnuverkefni um uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo árleg brennsla á 100-140 þ.t af úrgangi með orkunýtingu og kolefnisföngun verði möguleg.

Verðmætar lífrænar hliðarafurðir í fráveitukerfi skili sér í hringrásarhagkerfið svo skapa megi verðmæti úr viðkomandi straumum.

Tryggja samræmi og samkeppnishæfni rekstraraðila er falla undir ETS-kerfið með því að innleiða tímalega viðeigandi regluverk, leiðbeina og upplýsa.

Styðja þarf við þróun tæknilausna sem geta dregið úr losun frá staðbundnum iðnaði innan ETS kerfisins. Stuðningurinn helst í hendur við viljayfirlýsingu um föngun gróðurhúsalofttegunda undirritaða af stóriðju og stjórnvöldum árið 2021.

Varaflugvellir fyrir millilandaflug verða byggðir upp sem minnkar magn eldsneytis sem flugvél þarf til næsta varaflugvallar og eykur þannig orkunýtni.

Áfram verði unnið að orkusparnaði í farflugi með innleiðingu „frjáls flugs“ og orkusparandi verklagi við frá- og aðflug að flugvöllum í eigu Isavia ohf.

Innleiðing Isavia ohf. á flugvallarsamvinnuákvarðanatöku (A-CDM) og samræmd brottfararstjórnun (CADM) á Keflavíkurflugvelli.

Innleiða þrepaskipta kröfu ESB um lágmarkshlutdeild sjálfbærs flugvélaeldsneytis (SAF) fram til ársins 2050, þ.e. 2% árið 2025, 6% árið 2030 og allt að 70% árið 2050.

Skipaður verður vinnuhópur sem kortleggur leiðir til að tryggja nægt aðgengi að vistvænum orkugjöfum, þ.m.t. með fýsileikakönnun innlendrar framleiðslu og hvatakerfa.

Losun frá sjóflutningum stærri skipa (yfir 5000 brúttótonn og stærri) verður felld undir ETS-kerfið í skrefum. ETS-kerfið tók gildi 1. janúar 2024 en skipafyrirtæki þurftu að gera upp losun sína ári síðar. Þann 1. janúar 2024 tók kerfið gildi fyrir sjóflutninga í formi vöktunar en árin 2025 og 2026 þurfa skipafélög að gera upp losun sína að hluta og árið 2027 þurfa þau að gera upp losun sína að öllu leyti.

Innleiða Evrópugerðir sem er ætlað að undirbyggja sjálfbæran fjármálamarkað, svo tryggja megi aðgang að hagstæðari lánakjörum fyrir loftslagsvænar lausnir.

Skýra starfsreglur og verklag átakssjóðsins til að styðja við loftslags- og orkuskiptaverkefni á markvissan og skilvirkan hátt.

Sem hluti af innleiðingu nýs fjármögnunarkerfis vegna umferðar og orkuskipta, þar sem gert er ráð fyrir að vörugjöld á eldsneyti lækki verulega eða falli niður, var kolefnisgjald á jarðefnaeldsneyti hækkað í upphafi árs 2025. Skoðað verður hvernig megi útvíkka kolefnisgjald þannig að það nái til skemmtiferðaskipa.

Framlög til aðgerða sem stuðla eiga að kolefnisjöfnun eru upp að vissu marki frádráttarbær frá tekjuskatti lögaðila, t.d. skógrækt, landgræðsla, endurheimt votlendis og niðurdæling koldíoxíðs.

Breyta lagareglum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða til að liðka fyrir sjálfbærum fjárfestingum þeirra.

Aðgerðin er framhald af fyrri aðgerð um sjálfbæra innkaupastefnu og felur í sér samhæfingu við aðgerðir á sviði mannvirkjagerðar, fleiri hvata fyrir bjóðendur og markvissari framsetningu árangursmælinga og gagna.

Aðgerðin felur í sér markvissari gagnasöfnun og framsetningu kolefnisspors ríkisrekstrar á sem fjölbreyttastan hátt hvað varðar rekstur, þjónustuveitingu, innkaup og rekstur húsnæðis.

Að grunnvörður tengdar loftslagsbreytingum, loftslagsvá og sjálfbærnimálum séu innleiddar í aðalnámskrá grunnskóla og verði þar með hluti af skyldunámi í grunnskóla.

Þróa þarf námsfyrirkomulag í sí- og endurmenntun sem auðveldar sjálfbær umskipti með þjálfun starfsfólks til að mæta breyttum hæfniskröfum og markaðsforsendum.

Lögð er áhersla á að allir skólar verði loftslagsvænir og þar gegnir Grænfánaverkefni Landverndar lykilhlutverki á öllum skólastigum sem og önnur verkefni sem styðja við loftslagsvæna skóla á borð við UNESCO skólaverkefni Félags Sameinuðu þjóðanna.

Unnið er að endurskoðun sjóðakerfa og skipulags Rannís. Aðgerðin felst í því að rýna breytingar á sjóðakerfinu og tryggja að það virki sem hvati fyrir sjálfbærar lausnir og loftlagsverkefni í nýsköpun og rannsóknum.

Miðla upplýsingum um loftslagsmál á aðgengilegan og áreiðanlegan hátt, byggt á traustum gögnum.

Kortlagning á loftslagstengdum lýðheilsuvísum. Meta hvaða gögn eru tiltæk og hvaða gögn vantar til að skilgreina og birta viðeigandi vísa.

Endurskoða gátlista heilsueflandi samfélags á vegum embættis landlæknis m.t.t. loftslagsáherslna, velsældarhagkerfis og sjálfbærni, til að styðja markvisst við sveitarfélög og tengda aðila til að fara í viðeigandi aðgerðir og við mat á framvindu

Innleiða áherslur norrænu ráðlegginganna um mataræði (NNR 2023) í opinberar ráðleggingar um mataræði að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna.

Loftslagsstefna Stjórnarráðsins var samþykkt árið 2019 og gildir til ársins 2030. Endurskoða þarf loftslagsstefnuna svo hún endurspegli stöðu loftslagsmála og markmið, og tryggja að hún sé samþætt við aðrar stefnur og vottanir, t.d. Græn skref.

Móta og skýra áframhaldandi samstarf ríkis og sveitarfélaga með vísan til loftslagsmarkmiða Íslands.

Unnið verði að leiðbeiningum um hvernig hægt er að nýta skipulagsgerð til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis.

Einfalda skil á umhverfisupplýsingum rekstraraðila, m.a. upplýsingum um hráefnanotkun og um losun mengandi efna, þ. á m. gróðurhúsalofttegunda.

Innleiða Evróputilskipun og ESRS-staðla til að samræma sjálfbærniupplýsingar í reikningsskilum hagaðila á Íslandi.

Setja þarf fram viðmiðunarmörk (leiðbeiningar og aðferðafræði) sem notuð verða til að leggja mat á loftslagsáhrif lagafrumvarpa.

Móta og innleiða leiðbeiningar um mat samfélagslegra áhrifa aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum, og ferli til að aðlaga aðgerðir að markmiðum um réttlát umskipti.

Fjárhagslegt framlag í sérstaka sjóði UNFCCC með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í lág- og millitekjuríkjum og styðja við viðbrögð þróunarríkja vegna loftslagsvár.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.