D.3.3.

Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um leiðir til aðlögunar

Að útbúa leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um leiðir til aðlögunar að loftslagsbreytingum við skipulagsgerð. Styrkja viðnámsþrótt sveitarfélaga og getu þeirra til aðlögunar að loftslagsbreytingum með því að þróa leiðbeiningar sem nýtast í skipulagsgerð, með áherslu á samfélagslegt réttlæti og félagslega innviði.

Mikilvægt er að sveitarfélög taki mið að áhrifum loftslagsbreytinga við ákvarðanir um nýtingu lands og þróun uppbyggingar í hinu byggða umhverfi. Til þess er mikilvægt að þau hafi aðgang að leiðbeiningum um skipulagsgerð sem gerir þeim kleift að búa sig undir- og aðlagast áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðbeiningar um aðlögun að loftslagsbreytingum við skipulagsgerð verða unnar á grundvelli vinnu verkefnis í stefnumótandi byggðaáætlun þar sem fimm sveitarfélög taka þátt í verkefni um aðlögun íslenskra sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Við gerð leiðbeininganna verður horft til stöðu ólíkra hópa innan sveitarfélaganna, sérstaklega viðkvæmra hópa, og tryggja með þeim hætti að tekið sé mið af stöðu þeirra þegar litið er til aðlögunar að loftslagsbreytingum við gerð skipulagsáætlana.

Verkþættir

Verkþættirnir hér að neðan útskýra helstu verkefni og skref sem mynda framkvæmd aðgerðanna.
  • Leiðbeiningar um aðlögun aðloftslagsbreytingum við skipulagsgerð þar sem tekið er tillit til samspils þessvið félagslega innviði.

Upplýsingar

Ábyrgðaraðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti
Framkvæmd
Skipulagsstofnun
Upphaf / Endir
2025
2026
Áætlaður kostnaður
Liggur ekki fyrir
Staða aðgerðar
Fyrirhugað