
Styðja við orkuskipti í haftengdri starfsemi, hvort heldur sem er í gegnum Loftslags- og orkusjóð eða með stuðningi við umsóknir í alþjóðlega sjóði fyrir sjálfbærar lausnir.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.