
Losun frá sjóflutningum stærri skipa (yfir 5000 brúttótonn og stærri) verður felld undir ETS-kerfið í skrefum. ETS-kerfið tók gildi 1. janúar 2024 en skipafyrirtæki þurftu að gera upp losun sína ári síðar. Þann 1. janúar 2024 tók kerfið gildi fyrir sjóflutninga í formi vöktunar en árin 2025 og 2026 þurfa skipafélög að gera upp losun sína að hluta og árið 2027 þurfa þau að gera upp losun sína að öllu leyti.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.