Unnið er að endurskoðun sjóðakerfa og skipulags Rannís. Aðgerðin felst í því að rýna breytingar á sjóðakerfinu og tryggja að það virki sem hvati fyrir sjálfbærar lausnir og loftlagsverkefni í nýsköpun og rannsóknum.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.