
Ráðist verði í aðgerðir til að auka hlut strandflutninga í innanlandsflutningum og skapa rekstrarskilyrði sem styðja við tilfærslu vöruflutninga af vegum yfir á sjó. Í því skyni verði stuðlað að bættri samkeppnisstöðu reglubundinna strandsiglinga gagnvart landflutningum. Sjóflutningar eru almennt orkuhagkvæmari en landflutningar fyrir þungar og fyrirferðarmiklar vörur og geta jafnframt dregið úr álagi á vegakerfi og aukið umferðaröryggi.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.