Aðgerðin felur í sér áætlanagerð um hvernig megi auka hvata og þekkingu um nýtingu og varðveislu kolefnis í viðarafurðum úr íslenskum skógum á sjálfbæran hátt.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.