Aðgerðin felur í sér markvissa endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins. Á hluta ríkisjarða er framræst votlendi sem ekki er í nýtingu og þar felast veruleg tækifæri til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta ástand vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.