Aðgerðin miðar að því að þróa aðferðir og setja upp langtímavöktunarverkefni til að meta magn og breytingar á kolefni í íslenskum vistkerfum út frá viðurkenndum matsbreytum. Markmiðið er að eigi síðar en árið 2030 verði unnt að áætla kolefnisforða allra vistkerfa í losunarbókhaldi Íslands, breytingar á kolefnisforða þeirra og áhrif landnýtingar og endurheimtar. Í samræmi við auknar kröfur ESB samkvæmt nýrri reglugerð um gæði gagna og aðferðafræði í LULUCF þurfa gögn fyrir alla helstu landnýtingarflokka að vera komin á aðferðaþrep 2 árið 2026, þ.e. stuðlar byggðir á íslenskum rannsóknum, og á aðferðaþrep 3 árið 2030, þ.e. stuðlar byggðir á reiknilíkönum fyrir Ísland.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.