Aðgerðin felur í sér að greina tækifæri til bættrar landnýtingar í þágu loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni á jörðum í eigu ríkisins og móta heildstæða framkvæmdaáætlun með skýrum markmiðum og forgangsröðun aðgerða. Ríkissjóður Íslands á tæplega 430 jarðir og með þessari aðgerð gengur ríkið á undan með góðu fordæmi um sjálfbæra landnýtingu á jörðum í eigu ríkisins.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en er unnin af verkefnisstjórn aðgerðaáætlunar í breiðu samstarfi Stjórnarráðsins og stofnana þess.