Endurnýjanleg orkaÍsland nýtur mikillar sérstöðu vegna hlutfalls endurnýjanlegrar orku í orkubúskap þjóðarinnar. Yfir sjötíu prósent af frumorkunotkun landsmanna kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Víðast annarsstaðar er hlutfallið öfugt og langstærsti hluti frumorku annarra ríkja kemur frá jarðefnaeldsneyti. Það er einkum jarðvarmi og vatnsafl sem Íslendingar hafa verið duglegir að beisla og eigum við bæði heimsmet í raforkuframleiðslu á íbúa og jarðvarmanotkun á íbúa.
|
|
|
Ef Íslendingar hefðu ekki lagt áherslu á virkjun endurnýjanlegra orkugjafa væru útblásturstölur landsins með öðru móti. Ætla má að hitveituvæðing landsins spari árlega um 800 þúsund tonn af olíu sem þýddi 2,5 milljónir tonna útblástur CO2 ef henni væri brennt hér til húshitunar. Ef rafmagnsframleiðsla hér væri knúinn áfram með kolum eins og tíðkast víðast í öðrum löndum þá hefði útblástur vegna rafmagnsframleiðslu árið 2005 verið 7,8 milljónir tonna CO2 Það eru miklar framkvæmdir í gangi á orkusviðinu og líklegt að orkuframleiðsla nærri tvöfaldist á næstu árum. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hvernig útblásturstölur gætu litið út 2008. Til vinstri er áætlaður útblástur og til hægri má sjá hvernig dæmið liti út ef öll orkan kæmi frá jarðefnaeldsneyti. |
|
|