Mótvęgisašgeršir


Ísland hefur ákveðna sérstöðu í því að hér eru miklir möguleikar í landgræðslu og skógrækt á svæðum sem ekki eru nýtt í annað. Landið er stórt og víða gróðursnautt og víða hægt að binda kolefni í gróðri og trjám. Á eftirfarandi slóð má sjá hveru mörg tré eru nauðsynleg til að mæta árlegum útblæstri bifreiðar þinnar. Kolefnisbinding

Ef notaðar er forsendur í Landsspám sem Skógrækt ríkisins og Landbúnaðarháskólinn hafa gert, þá má miða við 4,4 tonna meðalbindihraða í ræktuðum skógum á Íslandi á hvern hektara. Hver hektari hefur um 2.200 tré.  Taflan hér að neðan sýnir hversu mikinn skóg þarf til að mæta árlegum útblæstri.

CO2.skogur

Eins og sjá má á töflunni þyrfti tæplega tveggja milljarða trjáa skóg til að mæta árlegum heildarútblæstri. Slíkur skógur myndi þekja um 8 km2 sem er innan við 10% af heildarflatarmáli landsins.

CO2.binding