Vistvænt eldsneytiÍ byrjun ársins 2004 tók til starfa Vettvangur um vistvænt eldsneyti. Vettvangurinn hefur það að markmiði að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í málefnum er varða eldsneytisnotkun. Eitt meginverkefnið er að kanna möguleika á því að nota hinar endurnýjanlegu orkulindir okkar til þess að búa til eldsneyti (eða orkubera) sem væri umhverfisvænna en það jarðefnaeldsneyti sem við notum og um leið samkeppnishæft hvað kostnað varðar. Sem dæmi um hugsanlega orkubera í þessu tilliti má nefna vetni, lífdísilolíu sem unninn er úr lífrænum úrgangi, metan sem einnig er unnið úr úrgangi, tilbúna gerfidísilolíu og hreinlega rafmagn. Vettvangur um vistvænt eldsneyti hefur aðsetur á Akureyrarsetri Orkustofnunar.
|
|
|