Landbúnaður
Útstreymið í landbúnaði er vegna metangerjunar í meltingarfærum húsdýra, meðhöndlunar og notkunar húsdýraskíts (húsdýraáburðar) og notkunar tilbúins áburðar. Útstreymi vegna eldsneytisnotkunar í landbúnaði (á tæki) er talið fram í samgöngugeiranum. Ætla má að hver kýr losi jafnmikið og venjuleg bifreið losar við 50 km akstur. Hægt er að hafa nokkra stjórn á losun með fóðurstýringu. Það er vitað að kýr sem fá hluta af fæðu sinni með korni eða aukaafurðum úr matvælaframleiðslu, losa minna metan en þær sem nærast eingögnu á heyi. Aukin hluti korns í fæðu nautgripa hér hefur því dregið úr losun gróðurhúsaloftegunda og eru íslenskar kýr því umhverfisvænni í dag en þær voru fyrir nokkrum árum síðan.
|
| Útblástur koldíoxíðs CO2 frá landbúnaði 1996-2005 |