Išnašur


Iðnaður og byggingarstarfsemi er sá flokkur sem stendur fyrir mestum útblæstri gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Útblásturinn er yfir milljón tonn og með aukinni uppbyggingu orkufreks iðnaðar má ætla að þessi flokkur muni nálgast tvær milljónir tonna árið 2008. Orkufreki iðnaðurinn er nær einungis í formi málmvinnslu þar sem álframleiðsla er ríkjandi.

 

              Útblástur koldíoxíðs CO2 frá Iðnaði og byggingarstarfsemi 1996-2005
CO2.idnadur

 

Orkufrekur iðnaður á Íslandi nýtur þess að vera knúinn af endurnýjanlegum orkugjöfum og því er útblástur vegna þessa iðnaðar hér miklu mun minni en þar sem jarðefnaeldsneyti er notað.  Ætla má að sparnaður á útblæstri, samanborin við kolaorku, muni ná um 10 milljón tonnum af CO2 af álvinnslunni einni saman. Það er hinn alþjóðlegi umhverfisparnaður sem fæst með því að keyra orkufrekan iðnað á endurnýjanlegum orkugjöfum.

tannhjol